|
|
13.07.2008 15:45:39 / arnarsn
Margt búið að gerast síðan síðasta blogg. Veðrið hefur samt ekkert breyst, og búið að vera slatti meira af dauða síðan síðast ^^
Ég ákvað að vera alveg ótrúlega rómó um daginn, koma skvísunni á óvart með því að leigja vespu og birtast bara algerlega óvænt hérna fyrir utan hótel. Mér tókst ekki betur upp en svo, að ég keyrði á kant þegar ég var að koma mér inn á götuna og flaug alveg rosalega á hausinn. Er síðan búinn að vera handónýtur í hendinni, með rispu á lærinu og marblett á stærð við fótboltavöll. Vespan fór víst eitthvað örlítið verr út úr þessu en ég, en það er víst hægt að laga hana á no time.... þurfti ekki að borga nema 120 evrur fyrir viðgerðina (sem mér finnst bara vel sloppið)  Mér tókst síðan víst bara alveg ágætlega upp með rómó hlutann, þrátt fyrir að vera ágætlega lemstraður eftir kantaknúsið 
Fyndið samt eftirá, hvað maður á það til að reyna að rjúka í burtu þegar maður lendir í einhverju svona. Ég semsagt flaug á hausinn, lá þarna að knúsa jörðina í einhverjar 5 sekúndur... og það kemur kona hlaupandi að "Meiddirðu þig?", ég var fljótur að svar "nei nei, það er allt í lagi með mig" ... og brunaði í burtu ^^ Ég hélt reyndar að það væri að blæða úr lærinu á mér á þeim tímapunkti, en langaði bara að koma mér sem fyrst upp á hótel að kíkja á skvísuna mína.
Við kíktum síðan á jetski seinna sama dag, burruðum út á höfn á vespunni og fengum 2 stykki blaut vesti. Síðan var haldið af stað út að vatnasleðunum, fórum þangað nokkur pör saman á gúmmíbát og var Sara víst svolítið stressuð, því þetta var jú fyrsta skiptið hennar. Við vorum síðan fljót að næla okkur í eina bláa vatnasleðann og brunuðum af stað út á sjó... bara svaka gaman 
Haha við vorum síðan víst eina parið sem var eitthvað vesen með þarna... liðið sem var á gúmmíbátnum var alltaf eitthvað að stússast í kringum okkur á meðan hinir héldu áfram hring eftir hring. Okkur tókst nefnilega að fljúga svona ofboðslega flott af sleðanum... það var eins og það væri bundið rosalega strekkt risateygja í bakið á okkur, sem kippti okkur síðan bara allt í einu af sleðanum (beint aftur á bak). Við náðum að koma okkur upp á sleðann eftir ágætis sundsprett, sem virtist aldrei ætla að taka enda... því sleðinn rak alltaf aðeins lengra í burtu. Þegar við komum síðan loksins upp á sleðann, þá tókst okkur að fljúga aftur af honum, bara við það eitt að koma okkur fyrir 
Eftir vatnasleða ferðina, þá gleymdum við að setja á okkur sólarvörn, og hef ég eytt síðustu dögum sem karfi í fiskabúrinu uppi á hóteli  Nei, svona án gríns, þá brann ég alveg hressilega á handleggjunum og hef verið mikið í peysum þegar ég hef farið út. Söru tókst samt einhvernveginn að sleppa við að brenna!!!  Þannig að, eins og þið sjáið, þá tók ég allt saman út á eina og sama deginum: mér tókst að slasa mig á vespu (rispaði lærið mitt og beyglaði hendina) og brann svona líka snilldarlega.
Í gær fórum við Sara síðan í Marineland og sáum alveg magnaða höfrungasýningu, sem ég tók að sjálfsögðu upp á vídjó. Sara fékk síðan koss frá sæljóni og eigum við mynd af okkur þremur saman  Við gátum síðan spjallað við African Grey fugla sem fá að vera lausir innan risastórs húss (sem er hálfpartinn eins og gróðurhús, nema með rimlum í staðinn fyrir gler). Þetta kveikti samt á smá söknuði til fuglanna okkar 
Eftir ferðina í Marineland, þá ákváðum við að skella okkur í Drekahellana, sem einhver félagi minn benti mér á að skoða. Ég verð að segja alveg eins og er að þetta var eitthvað það allra flottasta sem maður hefur séð... bara EVER. Maður byrjar á að labba alveg ágætis vegalengd niður á við, þar sem maður getur séð allskonar mismunandi lögun á dropasteinum. Síðan kemur maður neðst í einhverskonar rými, þar sem við fengum að sjá sýningu. Þá er slökkt á öllum ljósum og sigla upplýstir bátar framhjá, með píanóleikara og 2 fiðluleikurum. Eftir tónleikana, þá gerðu þeir einhvern svona effect eins og þegar sólin er að koma upp á morgnana.
Eitt sem fór samt alveg óóótrúlega í taugarnar á okkur. Það eru skilti fyrir utan hellana sem stendur á að það sé bannað að taka myndir og bannað að vera með myndatökuvélar þarna inni. Við ákváðum að vera sniðug og skila okkar græjum í bílinn áður en ferðin hæfist, en komumst síðan að því að við hefðum bara allt eins geta sleppt því, því það voru alveg ófáir einstaklingar í hópnum sem voru smellandi af í gríð og erg (með flassi). Enginn starfsmannanna sagði neitt við því. Okkur langaði bara mest að ná í vélarnar okkar, koma tilbaka og segjast hafa gleymt að taka myndir og rífast og skammast þegar okkur væri bannað að taka myndir.
Anywho, þá er lífið hérna samt alveg æðislega ljúft... gott veður, góður matur, góðir drykkir... en verð nú alveg að viðurkenna að þetta er farið að verða asskoti dýrt hérna 
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... Smell ya later! (Þefa þig seinna) 
»
05.07.2008 14:25:38 / arnarsn
Jæja!
Þá er maður bara í útlandinu, búinn að vera hérna síðan 25.jún og kem ekki aftur heim fyrr en 16.júl.
Margt og mikið búið að gerast síðan maður kom hérna út, búinn að vera að drepast úr hita, fara í go-kart, drepast úr hita, fara í vatnsrennibrautagarð, drepast úr hita, drepast úr hita og drepast meira. Eins og þú/þið (ef það eru einhverjir eftir) sérð/sjáið, þá er búið að vera mikið um dauða hjá mér, er eiginlega eins og köttur (stígvélaði kötturinn... eða eiginlega sandalakötturinn). En já, svona að öllu gríni slepptu, þá er búið að vera rúmlega 30 stiga hiti síðan við komum, glampandi sól og bara alveg þrusugaman... og dauði 
Erum alveg 9 í hópnum, þó við höfum kannski ekkert alveg verið límd við hvort annað allan tímann. Ég og Sara erum sem dæmi búin að vera slatta á röltinu út um allt hérna, búin að smakka búrgerinn hérna (Burger King) ... fundum síðan loksins Currywurst eftir að hafa prófað 3 mismunandi útgáfur af pulsunni.
Höfum fengið að prófa mismunandi pizzur, hamborgara og steikur... og fundið marga góða staði. Fengum að upplifa ströndina um daginn, vorum þá búin að kaupa svaka fínan og stóran gúmmíbát sem ég og Sara dugguðum um í sjónum á. Komumst reyndar að því að við hefðum þurft að kaupa árar, því við þurftum heldur betur að hafa fyrir því að busla okkur áfram með höndunum. Vorum við það að brenna duglega í andlitinu, þannig að við skelltum okkur á eitt stykki RISA gleraugu og stóra og hallærislega hatta... fórum síðan aftur niður á strönd, alveg handviss um að brenna ekki meir (og það virkaði).
Go-kart ferðin mikla: Ég, Sara og Böddi bróðir hennar skelltum okkur einn daginn saman í go-kart. Ég og Sara höfðum aldrei farið í go-kart áður, þannig að við ákváðum að vera bara á miðlungs góðum körtum (champion körtur), og vorum við öll með mismunandi áform á brautinni. Böddi var ákveðinn í að hringa mig, ég var harðákveðinn í að láta hann ALLS EKKI hringa mig... og svo var Sara allan tímann að passa að halda sig inni á brautinni (enda sýna myndirnar okkar áformin vel). Vil taka það fram, mér og Söru tókst að halda okkar áformum, en Böðvari gekk nú samt líklega best 
Við Sara fengum síðan að halda á uglu í vatnagarðinum, hef bara líklega aldrei haldið á jafn svölum fugli... næst verður það að vera örn 
Heyrðu já, ég átti víst ammli í gær... og fékk meira að segja vínflösku og kort í afmælisgjöf frá hótelinu. Ég átti svo alls ekki von á því að fá eitt né neitt, þannig að ég setti upp hissadúkku svipinn þegar við komum aftur upp á hótelið seinna um kvöldið 
En já, ætla ekki að halda ykkur límdum við skjáinn heilu dagana við lestur hérna... langaði bara að segja:
ÉG ER LÍKA Á MALLORCA NANANANANA 
»
29.11.2007 11:19:27 / arnarsn
Hæbb! Mig vantar hugmyndir að bollum, uppskriftir væru þá vel þegnar
»
16.11.2007 01:52:53 / arnarsn
Vorum að koma heim af eldhúspartýi Fm957. Þetta skiptið var farið, eins og fyrra skiptið, út í skíðaskála í Hveradölum og voru það meistarar Dalton og ekkisvomikill meistari Einar Águst sem kokkuðu upp þessa líka svaða fínu stemningu. Leynigestir voru engir aðrir en Raggi Bjarna og Þorvaldur Ásgeirsson(eða eitthvað svoleiðis, man eiginlega ekki alveg hvað blessaður maðurinn heitir). Allavegana, þá tókst gömlu köllunum bara asskoti vel að halda uppi stemningu... sem er eitthvað annað en hægt er að segja um Einar Ágúst. Einar Ágúst ákvað að nota kvöldið í að kynna rækilega nýju plötuna sína sem verður gefin út á morgun og endurtók það svona 15 sinnum að platan hans kæmu út á morgun, spilaði nærriþví eingöngu lög af nýja disknum og fólk gat sama og ekkert sungið með honum. Þetta varð til þess að það var hálfgert skvaldur á svæðinu og enginn virtist vera að fylgjast neitt með því sem hann var að syngja um(skil það reyndar mjög vel, alveg hægt að velja lög á svona vettvangi sem fólk getur sungið með ). Kvöldið endaði reyndar með ósköpum, einhver sterabolti barði tönn úr öðrum fyrir að hafa verið eitthvað að pæla í skvísunni hans(steraboltans sko) og fólk náði síðan að svindla bjór í rútuna og þurfti endilega að sitja í sætunum fyrir aftan okkur... til að toppa þetta, þá var bílstjóranum alveg sama um þetta og gerði ekkert í þessu þegar honum var bent á gæjana með bjórinn fyrir aftan okkur. Ég ætla mér nú samt að fara á næsta eldhúspartý, ef ég næli mér í miða. Þá verða Páll Óskar og Magni í eldhúsinu 
»
13.11.2007 23:55:27 / arnarsn
Íslandsvinur. Þetta er eitthvað það allra fáránlegasta orð sem ég hef heyrt fjölmiðla nota yfir fræga fólkið sem álpast á okkar litla klaka. Þurfa ekki að koma nema einu sinni til landsins og þá eru þau orðin "Íslandsvinir". Meira að segja Robbie Williams er talinn "Íslandsvinur" og hann var grýttur með flösku á tónleikunum sem endaði með því að hann rauk af sviðinu í svaka fýlu og hefur sagt að hann ætlaði sér aldrei að koma aftur til landsins 
»
12.11.2007 11:07:13 / arnarsn
Jæja! Þá er helgin búin og við búin að vera vægast sagt geðveikt dugleg með íbúðina okkar. Ég kláraði loksins eldhúsið og Sara kláraði næstum því svefnherbergið okkar(vantar bara einn vegg upp á  Skelltum okkur síðan í bíó í gærkveldi. Fórum á mynd sem heitir Eastern Promises. Þarna erum við að tala um skemmtilega brutal mynd sem fjallar um ljósmóður sem ákveður að reyna að hafa uppi á fjölskyldu einnar unglingsstelpu sem drepst á spítalanum sem hún er að vinna á. Stelpan deyr semsagt þegar hún er að fæða barn og ljósmóðirin ákveður að reyna að hafa upp á fjölskyldu stelpunnar, svo að litla barnið þurfi ekki að lenda í ættleiðingarkerfinu. Kemur síðan í ljós að stelpan sem dó hafði lent svona líka illa í klónum á mafíu og er ljósmóðirin þá að koma sjálfri sér í vandræði með þessari forvitni sinni. Klassa mynd, mæli sterklega með henni  En já, þarf að fara að drífa mig í vinnuna... vagninn keyrir sig víst ekki sjálfur  Adios!
»
04.11.2007 03:14:13 / arnarsn
Vorum að koma heim af afmælisdjammi. Okkur var semsagt boðið í 35 ára afmæli frænda hennar Söru. Ákváðum að gefa honum svolítið veglega afmælisgjöf, þar sem hann hefur jú reynst henni Söru minni mjööög vel, og jú mér líka eftir að við tvö byrjuðum saman. Síðan í partýinu, þá var maður tilbúinn með myndavélina til að ná svipnum á kvekendinu þegar hann næði loksins utan af pakkanum, en náði ekki að taka myndina af honum... því vélin tók ekki nógu hratt myndir sökum skorts á birtu. Spjölluðum heilmikið við félaga Hauks(Haukur er afmælisbarnið , mestmegnis um bílaraunir og höfðum asskoti gaman að. Kjellinn, þ.e.a.s ég endaði á því að drekka 5 stykki Kalla(Carlsberg) yfir tímabilið(partýið+leiðin heim). Það var semsagt mjög mikið hlegið og mjög mikið af sögum látið flakka sem fólk hafði ekki heyrt áður. Pís át!
»
03.11.2007 13:15:10 / arnarsn
Jæja! Löngu kominn tími á nýja skoðanakönnun, enda búinn að vera í löngu fríi  Síðasta könnun fór þannig að flestir voru á því að eðlilegast væri að gifta sig á bilinu 18-25 eða eitthvað. En já, endilega taka þátt í nýju skoðanakönnuninni
»
03.11.2007 00:58:40 / arnarsn
Erum á fullu núna að reyna að gera íbúðina fína fyrir morgundaginn. Málið er að þá verður dagskráin svoldið þétt og munum við ekki hafa neinn tíma til að gera eitt né neitt í íbúðinni... og mamma hennar Söru er mögulega að koma í heimsókn um helgina. Erum semsagt að klára að mála gestaherbergið, ég er síðan að fara að mála eldhúsið(þó fyrr væri). Ég ákvað síðan eftir smá spjall við yfirmann minn að gefa vinnunni smá séns. Hann sagðist ætla að laga það sem var að gera það að verkum að mér leið svona illa í vinnunni, sem var þetta: vagninn stútfyllist oft, og þó svo að fólk sjái að vagninn er troðinn... þá reynir fólk samt að troða sér inn í hann ef ég þarf að stoppa á biðstöð til að hleypa fólki út. Annað vandamál sem ég nefndi við hann var að maður ætti mjög erfitt með að halda áætlun, að ég næði þá varla matarpásum ef ég yrði settur á stærri bíl til að laga þetta stútfyllist dæmi... þá var mér bara sagt að kalla í talstöðinni og láta vita að ég væri seinn og þeir myndu setja annan bíl inn á hringinn svo ég næði pásunni. Þriðja vandamálið sem ég nefndi gat hann hinsvegar ekki lagað, en það er hálkan hérna útfrá. Málið er það að það er bara saltað til 3 eða eitthvað álíka og ef það snjóar eftir það, þá er maður bara screwed. Gaurinn sagði mér að þetta væri yfirleitt alltaf svona í byrjun hvers vetrar þegar fyrstu frostin koma, þá séu þeir seinir á sér að byrja að salta og svona... en annars eigi söltun að vera tip-top hérna útfrá. Bottom line, ég verð eitthvað áfram hjá Sbk... allavegana gefa þessu smá séns áfram. Anyways, farinn að gera eitthvað gagn hérna... mála eldhúsið
»
01.11.2007 08:34:18 / arnarsn
Heihó... Keikó! Nei bara smá flipp Ég er sumsé enn á lífi, þrátt fyrir mjög svo blogg-snautt líf síðustu mánuði(eða hvað það er nú komið langt síðan síðast). Heill hellingur búinn að gerast síðan síðast. Skellti mér til Þýskalands í júlí með dömunni minni. Vorum í 10 daga þarna úti í alveg meiriháttar góðu veðri. Ferðin gekk nú samt ekki alveg hnökralaust fyrir sig, því mamma benti okkur á að kíkja á garð sem heitir Vogelpark (sem útleggst Fuglagarður á íslenskunni). Málið er það að mamma benti okkur á þennan garð, sem átti að hennar sögn að vera nálægt Berlin, en gat samt ekki gefið okkur nánari upplýsingar... ekkert götuheiti eða neitt meira. Við ákváðum að prófa að skella bara Vogelpark inn í navigation tækið sem var í bílnum og sjá hvað kæmi út úr því. Jújú, fannst Vogelpark, en í 400 km fjarlægð eða eitthvað álíka langt... get ekki alveg sagt að það sé nálægt Berlin. Hvað um það, við ákváðum samt sem áður að skella okkur, en þegar við svo loksins komum þangað, þá kom í ljós að þessi blessaði garður hafði verið lokaður í þó nokkurn tíma og ekkert um að vera... bara skilti á jörðinni undir tré. Fundum síðan einhvern bæ þarna rétt hjá sem var bara ansi fallegur og tókum heilan helling af flottum myndum þar. Við vorum semsagt 2 nætur í Berlin áður en við skelltum okkur yfir til Frankfurt, þar sem við vorum 3 nætur. Skoðuðum gamla heimabæinn minn, Langen, sem er í svona 10 mínútna fjarlægð frá Frankfurt og er ekki laust við að maður hafi verið svoldið klökkur yfir að sjá gamla pleisið sitt aftur. Fórum á veitingahús sem er á jarðhæðinni í blokkinni sem ég átti heima í og fengum okkur að borða eitt kvöldið... einhverskonar kjöt og svo franskar(bestu franskar sem við höfum fengið . Annars vorum við líka rosalega hrifin af veitingastað rétt hjá hótelinu sem við vorum á í Frankfurt, fórum þangað reglulega og fengum okkur Currywurst(pylsa með karrísósu og karríkryddi). Skelltum okkur í dýragarðinn í Frankfurt og svo þegar þessir 4 dagar voru búnir, þá brunuðum við yfir í Soßmar og Hohenhameln, þar sem við fengum að gista hjá langömmu restina af ferðinni okkar. Fengum síðan að vita frá frænku minni að Vogelpark væri síðan eftir allt saman rétt hjá Hohenhameln og ákváðum við að skella okkur þangað, þar sem mamma hafði talað svo fallega um garðinn... að hann væri bara paradís á jörðu, blóm út um allt og heill garður með nærri því eingöngu fuglum. Garðurinn stóðst algerlega væntingar, því þetta var alveg ótrúlega fallegt þarna, örugglega allar tegundir fugla sem hægt er að finna í heiminum og blómin... vá vá! Sýndi síðan dömunni svæðið sem Oma og þau eiga heima á og svo skelltum við okkur heim. Tókum yfir 1200 myndir á þessum 10 dögum  Ég er síðan hættur hjá Strætó bs. núna, kominn yfir til Sbk, því við ákváðum að flytja til Keflavíkur. ALLTOF dýrt að kaupa í Rip-off-vík. Anyways, þá er ég samt að fara að hætta hjá Sbk aftur, því mér líður virkilega illa í þessu starfi. Ætla að líta aðeins í kringum mig, sjá hvort maður finni ekki eitthvað sniðugt hérna... ef ekki, þá fer maður líklega bara að harka full time. Keyptum okkur síðan kort í ræktina áðan, fórum í einhvern Body pump tíma klukkan fokking 6:05!! Hvað er málið eiginlega með að hafa tímana svona snemma?? Erum búin að vera voða dugleg síðustu daga með að borða heilsusamlega og búin að minnka allverulega við okkur í kók drykkju Ættum að vera komin í ágætis form einhverntíman fyrripartinn næsta árs, erum allavegana byrjuð
»
27.03.2007 00:18:42 / arnarsn
Já gott fólk, ég er búinn að komast að því að ég er með asskoti
stórt skap. Var kominn inn á Kirkjusand(þar sem vagnarnir eru
geymdir á næturnar) um 22 leytið og stóð síðan í hliðinu að bíða
eftir að ná leið 14 upp á Hlemm. Stóð síðan þarna eins og
vitleysingur, veifandi höndunum út í loftið og ekki stoppaði
vagninn fyrir mér... þannig að Arnar litli þurfti að rölta upp á
Hlemm eftir bílnum sínum. Þetta varð síðan til þess, að í staðinn
fyrir að ég færi beint heim, þá brunaði ég alveg sótillur niður á
Granda að skammast í vagnstjóranum sem stöðvaði ekki fyrir mér.
Þegar ég kem út á Granda, þá er vagninn nýkominn á staðinn og
passaði akkúrat fyrir mig að parkera þarna rétt fyrir framan. Ég
rauk síðan út og get svo svarið það að karlgreyið hefur örugglega
orðið pínulítið hræddur við mig, því ég hef örugglega ennþá verið
þokkalega illur og sést mjög vel á mér í hvernig skapi ég var í.
Hann baðst alveg innilega afsökunar á að hafa ekki stoppað og
pikkað mig upp, að hann hafi ekki ætlað að særa einn né neinn

Síðan keyri ég bara heim á leið og ákveð einhverra hluta vegna
að keyra Bústaðaveginn. Neinei, þá lendi ég á eftir einhverri
kerlingarbeyglu sem hefur örugglega aldrei heyrt um hina 4 gírana á
bílnum...OG hefur í þokkabót pottþétt verið með bílinn í
handbremsu. Þetta var ekki alveg að bæta skapið hjá mér, sem
var nú nokkuð slæmt fyrir... síðan til að toppa þetta allt saman,
þá byrjaði að SNJÓA *krumpf* 
Ég dríf síðan loksins heim, alveg ágætlega sáttur við að geta
loksins slappað af... en neeeeii, þá áttaði ég mig á því að ég
hafði gleymt handfrjálsa í vagninum, þannig að ég þurfti að rúlla
aftur niður á Kirkjusand að ná í þetta.
Ætlaði síðan að blogga núna um daginn. Málið er að ég var að
hlusta á útvarpið í vinnunni og bara gjörsamlega límdist við eina
útvarpsstöðina... því útvarpsmaðurinn var svo geeeðveikt hress og
skemmtilegur. Hann var ekki svona þessi venjulega hressa týpa,
heldur svona eins og maður heyrir oft í erlendum útvarpsmönnum...
eða í þeim sem stjórna tækjum í tívolíum "do you wanna go faster??
scream if you wanna go faster! ". Var svona svoldið æði á honum eða
eitthvað, allavegana mjög skemmtilegt að hlusta á hann. Ásgeir Páll
heitir hann víst, heyrði það í endann á þættinum 
Anyways, þá langar mig líka að benda ykkur á að pulsan(löggan)
er búin að setja upp hraðamyndavélar í boxin á gatnamótum
Miklubrautar og Grensásvegar... bara svona þannig að þið verðið
bremsunni á þessu svæði 
»
11.03.2007 03:06:29 / arnarsn
Halló halló gott fólk!
Ég er þá snúinn aftur... til þess að vara ykkur við lélegum
eftirlíkingum. Málið er það að einhverjum grínistanum datt í hug að
búa til Coke ZERO. Eins og Diet kókið hafi nú ekki verið nógu
andskoti vont, þá fá þeir einhverra hluta vegna svona hugdettu
"hey! búum til ennþá verra "kók"." . Ég var semsagt að smakka þenna
viðbjóð áðan og verð að segja fyrir mitt leyti að þetta bragðaðist
ekkert eins og kók, alls ekki neitt. Mín fyrstu viðbrögð voru
"hey... það virðist vera ákveðin vöntun á kókbragði hérna", á meðan
viðbrögðin hjá Sörunni minni voru "Nei vá!... alveg eins og
koooóóók.... bleehh, vont eftirbragð".
Við urðum semsagt sammála um að þetta er virkilega vont og ætti
engan veginn að kallast Coke, heldur kúk, eða cock eða eitthvað
álíka(gælunöfnin eru algerlega mínar vangaveltur yfir nöfn sem
myndu hæfa þessari vöru betur). Ef einhverjum ólánsömum
einstaklingi sem hefur haft þá óánægju að smakka þennan óþverra
dettur eitthvað betra nafn í hug, þá má endilega setja það í
comment 
Það sem hefur svona helst verið að gerast hjá manni síðan síðast
er eftirfarandi:
1. Sara flutti inn til mín, hundurinn missti fljótlega áhuga á
mér eftir það, þannig að hún gaf mér ástarfugl... þannig að við
erum núna orðin þriggja "manna" fjölskylda 
2. Ég fékk ekki að vera áfram eftir áramót hjá Strætó bs. , þeir
vildu víst meina að ég hefði verið svo mikið frá og eitthvað
bullshit bara. Ég fékk einhverja vinnu upp á spítala við að keyra
mat á deildirnar en hætti þar eftir alveg óóótrúlega stuttan tíma,
því launin voru örugglega verri en atvinnuleysisbæturnar. Reddaði
mér síðan vinnu hjá Íslenska gámafélaginu, við að keyra
frontloader. Vann þar í 5 nætur eða eitthvað og komst þá að því að
ég gat ekki unnið þá vinnuna, því ég var alveg ónýtur í bakinu
eftur vaktirnar og svo er hálsinn og vinstri hendin á mér líka í
hönk. Ákvað að skella mér síðan bara niður á Strætó og athuga hvort
ég fengi nú ekki séns, þannig að ég er kominn aftur að keyra strætó
núna. Er á þriggja mánaða samningi eins og er, fæ síðan annan
þriggja ef þessi gengur vel og svo árs samning eftir það. Ég er
allavegana geðveikt sáttur eins og er 
3. Ég og Saran mín erum að plana að kaupa íbúð, eftir að hafa
fengið ágætlega netta útreið frá gamla settinu á neðri hæðinni. Þau
vilja hundinn út, þannig að við ákváðum bara að fara að leita að
nýju pleisi til að vera á MEÐ hundinn og fuglinn. Annars var þetta
nú ekki eina sem þau voru að skammast í okkur, en það verður nú
ekki farið nánar út í það... getum bara orðað það þannig að það
voru mjög svo óþægilegar "samræður".
4. Skelltum okkur á 90's ball á Nasa síðasta laugardag. Hef bara
sjaldan vitað annað eins stuð, vorum bara dansandi liggur við
non-stop allan tímann sem við vorum þarna. Mættum á svæðið um 12
leytið og fengum þá að vita að það yrði ekki hleypt inn fyrr en
eftir sirka HÁLFTÍMA, þó svo að auglýstur tími væri 00:00. Anyways,
komumst loksins inn í hlýjuna og fórum síðan heim um ??:?? (vorum
alveg þangað til að fjörið var mestmegnis búið).
En jæja, held ég láti þessa upptalningu mína duga. Segi bara
"varist eftirlíkingar, ekki drekka kúk þegar þú getur drukkið kók"

»
21.09.2006 06:35:46 / arnarsn
**TIL SÖLU**
Er að selja bíla hátalarana mína. Erum að tala um 6 stykki,
bassabox og magnara. 2x85wött, 2x90wött, 2x200wött og svo er
bassaboxið 500wött... allar tölur í rms wöttum. Bassaboxið er síðan
með innbyggðum magnara, þannig að það þarf ekki magnara fyrir
boxið.
Sel allan pakkann á 170þús, eða staka hátalara(í pörum að
sjálfsögðu)... bara eftir því hvað fólk vill 
»
15.09.2006 03:23:22 / arnarsn
Já kallinn er mættur aftur eftir heljarinnar bloggleysu. Búinn
að vera með ritstíflu, eða bara þjáðst af allsherjar bloggleti.
Fór í keppnisferð til útlanda með vinnunni í síðasta mánuði.
Byrjuðum á að hittast niðri á Kirkjusandi(þar sem vagnarnir eru
geymdir á nóttunni). Fórum öll saman í rútu þaðan og upp á flugvöll
og kom strax í ljós í rútunni að þetta yrði alveg mögnuð ferð...
meiriháttar stemning í hópnum og mikið um grín og fíflalæti.
Flugum frá Kef til Stokkhólms og þurftum þar að fara að basla
eitthvað við að redda okkur strætó niður á höfn, þar sem beið eftir
okkur þetta líka geggjað flotta skip til að ferja okkur yfir til
Tallin. Erum að tala um hérna 10 hæða ferju með diskóteki, casino,
tveggja hæða skemmtistað og karókístað. Á skemmtistaðnum var boðið
upp á allskonar skemmtiatriði fram á kvöld; eins og danssýningu,
farið í limbókeppni og svo var hljómsveit sem spilaði langt fram á
kvöld á sviðinu þarna. Komst síðan að því að meiri hluti íslenska
hópsins var búinn að planta sér á karókístaðnum og var ég manaður í
að taka lagið, sem ég og gerði og fékk að launum stríðni eftir á.
Ákvað að taka Killing me softly með Fugees, en lenti á alveg
hræðilegri útgáfu... því þeir voru með útgáfu þar sem maður þurfti
að rappa líka og þá stóð ég bara eins og illa gerður hlutur uppi á
sviði á meðan textinn birtist á skjánum. Fékk síðan að heyra það
eftir á að ég hefði frekar átt að taka Killing me quickly 
Komum síðan til Tallin einhverjum 16 tímum eftir brottför frá
Stokkhólmi. Lenti í því að sofa svona líka hressilega yfir mig, þó
svo ég hefði stillt vekjarann á símanum að vekja mig klukkan 8.
Fattaði það síðan eftir á að ég hafð víst ekki stillt klukkuna á
símanum á útlandatímann, að hún væri ennþá stillt á íslenskan tíma.
Þannig að ég missti þarna af morgunmatnum og þurfti þvílíkt að
hlaupa út úr skipinu þegar ég var búinn að klæða mig.
Vorum síðan heilan dag + nótt í Tallin í alveg meiriháttar
veðri, fórum á alveg ofboðslega flottan veitingastað sem heitir
Beer House. Staðurinn er látinn líta svoldið út eins og maður sé
kominn inn á vestra-bar. Síðan fékk fólk sér nú öl í hendi og var
meira að segja í boði líters bjór í krús, ekkert smá magnað að sjá
stærðina á þessu. Ég allavegana varð vel ölvaður af þessum fjanda
og endaði nóttina á heldur óskemmtilegan hátt. Hélt ég hefði
týnt töskunni minni, sem ég var yfirleitt alltaf með á öxlunum...
og hélt þar af leiðandi að ég væri búinn að glata passanum mínum og
fékk þarna eitthvað það rosalegasta panic kast sem ég hef
nokkurntíman fengið Taskan var síðan bara á gólfinu upp við
vegg þegar ég vaknaði, og leið mér þá strax betur að vita af því að
vera ekki búinn að týna einu né neinu... en leið samt hálfpartinn
kjánalega yfir því hvernig ég lét um nóttina 
Fórum síðan með spíttbátum frá Tallin yfir til Helsinki, tók
ekki nema 90 mínútur. Get nú samt ekki beint sagt að ég hafi notið
þeirrar ferðar, því ég var alveg með ólíkindum þunnur... svaf
meirihlutann af leiðinni. Kíkti síðan upp á dekk þegar við vorum um
það bil að koma og stuttu síðar fengum við þessa líka svaaaaka
hlussu dropa á okkur 
Þegar við komum til Helsinki, þá beið þarna eftir okkur rúta sem
flutti okkur á hótelið okkar... en ekki fyrr en við vorum búin að
fá smá sight-seeing um borgina, búin að fá kort í hin ýmsu
farartæki og kort yfir borgina. Komum síðan á hótelið, sem ég held
að sé alveg pottþétt allavegana fjögurra stjörnu... fengum
lyklana(kortin) að herbergjunum og farið í það að finna herbergin.
Fannst þokkalega magnað að maður þurfti ekkert að fara út til að
komast í mall-in, gátum tekið lyftuna niður á neðstu hæð og þá var
maður kominn í undirgöng yfir í mall-in. Síðan þurfti maður að nota
kortin að herbergjunum á lyftuna til að komast það sem maður ætlaði
sér. Ég og 3 önnur sem héngum oftast saman þarna í Helsinki vorum
dugleg að rölta um borgina og vorum, að því að ég held alveg
pottþétt, þau einu af íslenska hópnum sem notaði kortin sem við
fengum þegar við komum til landsins... skelltum okkur í sporvagna,
ekkert smá fjör 
Síðasta daginn sem við vorum þarna úti, þá var ökuleikniskeppnin
haldin og enduðum við íslendingarnir í öðru sæti í þetta skiptið, á
eftir finnunum. Eftir keppnina, þá fóru öll liðin saman á stað og
var haldið lokahóf(sem mér fannst reyndar enda allt allt of
snemma). Eftir lokahófið, þá ákváðu nú samt alveg ágætis slatti af
liðinu að skella sér á einhvern skemmtistaðinn í bænum og endaði ég
þá á því að fara í blackjack á staðnum... borgaði meira að segja
upp bjórinn sem mér var lánaður 
Daginn eftir var haldið heim á leið, og fórum við þá með
ennþá stærra skipi yfir til Stokkhólms heldur en
við fórum með yfir til Tallin frá Stokkhólmi. Þetta skip var alveg
rosalega stórt, alveg 13 hæðir og virkaði svo ofboðslega stórt að
þegar við komum um borð, þá spurðum við hvort annað "hvar er
skipið" Ég er ekki að grínast með þetta, það er göngugata í
skipinu, sem er svo stór að það væri auðveldlega hægt að keyra bíl
þarna. Síðan hélt maður nú að við hefðum verið að koma inn á fyrstu
hæð, en neinei, þá komum við víst inn á sjöundu hæð. Alveg heill
hellingur af verslunum þarna, nokkrir veitingastaðir, pöbbar,
casino og svo skemmtistaður á 2 hæðum. Á tólftu hæðinni var síðan
sundeck, þar sem fólk gat legið og sólað sig í góða veðrinu... sá
síðan líka alveg ofboðslega flotta heita potta þarna inni á tólftu
hæðinni. Síðan ef maður fór upp á þrettándu hæð, þá var þar
diskótek með karókí, bíósalur og svo var þarna líka herbergi með
3-4 Playstation 2, 4 PSP, fullt af mp3 spilurum eða einhverju
svoleiðis og svo stærðarinnar borð með fullt af pc vélum á
Semsagt, eitthvað fyrir alla um borð í þessu skipi. Ég get ekki
sagt annað en að ég hafi skemmt mér alveg meiriháttar vel um borð í
þessu skipi, en endaði síðan dvöl mína þarna á því að týna veskinu
mínu.
Sendi þeim mail með upplýsingum um veskið, hvað væri í því og
svo framvegis og var svo ekkert að gera mér neinar vonir með að það
hafi fundist, því ég fékk engin svör. Síðan einn daginn, þá fæ ég
bréf í pósti, merkt skipinu og þá hafði veskið víst fundist en ég
þarf að borga eitthvað til að fá það aftur.
Heyrðu, síðan kom kellan í bæinn um gaypride helgina. Minns varð
alveg meiriháttar fúll yfir göngunni, því ég festist á Hlemmi á
meðan gangan var að fara framhjá. Var sko í vinnunni þegar hún var,
og varð alveg hálftíma of seinn út af þessu öllu saman og það var
alls ekki að fara vel í mig. Anyways, skellti mér síðan á Nösina á
Palla-ballið með Sörunni minni. Skemmtum okkur alveg rooosalega
vel. Félagi minn var í því að bjóða okkur skot þarna og drykki og
svo var farið að dansa. Plöntuðum okkur uppi á sviði, reyndar alveg
uppi á palli þar sem Palli var að spila og svo var bara dansað af
sér skóna(eða öllu heldur skyrtunni) Það var svo hrikalega heitt
þarna að ég endaði á því að fara úr skyrtunni til að halda lífi. -
Vorum svo nett letileg daginn eftir, lágum bara uppi í rúmi og
gláptum á þætti eða eitthvað(minnir mig).
Ég skellti mér síðan norður helgina á eftir(eða þarnæstu á
eftir). Ætti eiginlega að skrifa svona lagað jafnóðum og það
gerist, því ég er ekkert voðalega minnugur um tímasetningar.
Anyways, skellti mér norður með Púka (hvolpinn minn). Þurftum að
gista í tjaldi í garðinum fyrir utan hjá Söru, því mamma hennar er
með svakalegt ofnæmi fyrir hundum. Þetta gekk bara vel hjá okkur að
vera með litla greyið í tjaldinu. Var reyndar svoldið kalt þegar
annað okkar fór, en það reddaðist með því að setja teppi undir
okkur og nota svo 2 sængur yfir 
Skvísan mætti síðan í bæinn síðustu helgi og skelltum við okkur
í afmælispartý til Hönnu Láru. Allir bara í svaka fíling þarna, og
tekið vel á því... dömurnar duglegar að dansa við lögin og svona.
Ákváðum síðan að skella okkur í bæinn og þegar leigubíllinn kom að
ná í okkur, þá kom í ljós að ég þekki bílstjórann. Var að vinna með
honum hjá Strætó og fékk að taka niður númerið hans til að geta
bjallað í hann þegar við ætluðum heim. Komum síðan niður í bæ og
skelltum okkur beinustu leið á Barinn(fyrrum 22). Dönsuðum þar af
okkur skóna, og hitti líka Oddnýju æskuvinkonu þar... ekkert smá
gaman að hitta hana eftir svona langan tíma Fórum síðan þaðan
yfir á Glaumbar, eftir að hafa ætlað á Hressó. Ætluðum að hitta
Flandrann á Glaumnum, en honum var víst grýtt út stuttu eftir að
við komumst inn. Dyravarðafíflið sem henti honum út er víst
eitthvað illa við karlangann eftir eitthvað vesen sem var á
Flandranum fyrir mörgum öldum, talandi um að vera langrækinn. Vorum
þarna inni í einhverja smástund í viðbót, kláruðum úr glösunum og
fundum svo Flandrann hjá pulsubarnum(fyrir utan stóru klukkuna á
Lækjartorgi). Flandrinn var að fá sér pulsu og Sverrir Bergmann
stóð þarna í röðinni með honum. Hringdum síðan í gaurinn og létum
hann pikka okkur upp, lentum síðan í einhverju kortaveseni en það
reddaðist síðan allt á endanum.
Held ég láti þetta bara nægja í bili, enda örugglega enginn sem
hefur nennt að lesa þetta allt saman  
»
12.07.2006 01:43:59 / arnarsn
Afhverju ætli það sé að maður skrifar ekki nema með löngu
millibili og skrifar þá heilar ritgerðir? Maður afsakar sig með
því að maður sé svo hrikalega busy, en síðan er maður alveg
ofboðslega busy við að gera ekki neitt 
Anyways, þá kom Sara í bæinn á laugardagsmorguninn. Átti von á
henni einhverntíman á meðan ég væri í vinnunni, þannig að ég var
búinn að plana að taka bara úr lás svo hún kæmist inn að leggja
sig. Heyrðu, haldiði ekki bara að skvízan hafi hringt í mig um 5
leytið og eiginlega grátbeðið mig um að koma niður og taka úr
lás... sagði að hún vildi vera alveg 100% viss um að ég myndi ekki
gleyma því. Síðan þegar ég kem niður og opna hurðina til að taka úr
lás, þá stendur skvízan fyrir utan... og minn bara totally
surprised Ég var síðan að vinna til eitthvað 3 eða 4 um
helgina, en svo gerðum við nú ýmislegt sniðugt saman eftir vinnuna
hjá mér. Skruppum í heimsókn til mömmu að kíkja á hvolpana. Gæti
einmitt verið að ég taki annan þeirra að mér(ef það er í lagi með
hann). Síðan á laugardagskvöldinu, þá bauð ég Söru út að borða og á
Footloose beint á eftir matnum. Showið var bara alveg þokkalega
flott, vel sungið og svona... en verð nú samt að segja alveg eins
og er að það var frekar spes að heyra lögin á íslensku Á
sunnudagskveldið dró daman mig í bíó og bauð mér í Vipparann, á The
Break-up. Kannski aðeins of mikið gert úr dramanu í henni, en svona
þar fyrir utan, þá er þetta svosem ágætasta mynd... líka alveg hægt
að sjá svona takta í samböndum hjá sumum.
Hehehe vá hvað maður getur talað eitthvað af sér. Var niðri í
mat um daginn, ásamt ömmu og afa og svo komu líka Gógó frænka mín
og Billi maðurinn hennar. Við vorum eitthvað að tala um hvolpa, ég
sagði þeim að mig langaði svoldið að fá mér hvolp og þá spurði
Billi mig hvort ég væri að pæla í púðluhundum Ég var náttla
fljótur að svara því að ég myndi sko aldrei fá mér púðluhund, því
mér þætti þetta alveg hrikalega ljótir hundar... en mundi síðan
eftir á að Billi og Gógó áttu einusinni púðlu 
Alltaf heyrir maður eitthvað sniðugt í útvarpinu. Heyrði um
daginn að David Hasselhoff ætlaði sér að gefa út rapp plötu. Ég er
alveg á því að annað hvort verður þetta þvílíkt flopp að annað eins
þekkist varla, eða þá að þetta verður bara nokkuð flott hjá
kallinum. Mig langar náttla frekar að trúa því að hann geti þetta
alveg, en það verður bara að koma í ljós. Heyrði síðan í vinnunni í
morgun, þegar ég var að hlusta á Zúúber að þeir væru mjööög líklega
að fara að standa fyrir vatnsbyssustríði í ágúst eða september.
Þetta virkar þá þannig að þegar fólk skráir sig til leiks; þá
skráir það nafn, heimilisfang, hvar maður er að vina og svo lætur
maður mynd af sér fylgja með. Síðan virkar þetta þannig að hver og
einn fær sent bréf frá Zúúber með upplýsingum + mynd af einhverjum
öðrum gæja/gellu og þá á maður að fara út og reyna að finna
viðkomandi og skjóta hann/hana. Ég sé þetta einmitt fyrir mér,
fullorðið fólk úti í bæ með BIG ASS Supersoaker
5000 að elta fórnarlambið. Það sem má síðan nota eru; litlar
vatnsbyssur, vatnsblöðrur og STÓRAR vatnsbyssur
með pumpu. Stríðið stendur síðan yfir í 3 vikur og er það 24/7
dæmi, þannig að fólk sem skráir sig getur átt von á því að fá
einhvern bankandi upp á heima hjá sér einn daginn, eða viðkomandi
mætir í vinnuna til manns. Ef viðkomandi nær að skjóta mann, þá er
maður úr leik og hann tekur við verkefninu sem maður var með.
Leikurinn endar síðan eftir 3 vikur, eða ef einhver nær að komast
yfir sitt eigið spjald(því þá er hann búinn að skjóta alla aðra).
Þetta dæmi er nátta BARA geðveikt og ég ætla bókað
mál að skrá mig, skora á ykkur hin að vera með líka 
Heyrðu, setti síðan inn nýja skoðanakönnun.. hin náttla búin að
vera þarna síðan 1700 og súrkál. Þessi er nú líka aðeins eðlilegri.
Hin fór hinsvegar þannig að fólki fannst jafn ósmekklegt að klóra
sér í pungnum og að klóra sér í rassinum á almannafæri. Fólki
fannst hinsvegar minnst ósmekklegt að bora í nefið á almannafæri.
Útkoman var hinsvegar svona:
|
|
Bora í nefið |
|
17%
|
|
Klóra sér í rassinum |
|
42%
|
|
Klóra sér í pungnum |
|
42%
|
»
Síður: 1 2 3 4
|
|